Persónuverndarstefna

Persónuverndarstefna Ljósmyndavörur ehf.

  1. Almennt

Persónuvernd skiptir Ljósmyndavörur ehf. miklu máli. Persónuverndarstefnan tekur til persónuupplýsinga, hvort sem þeim er safnað og þær varðveittar, með rafrænum hætti, á pappír eða með öðrum sambærilegum hætti.  Persónuverndar stefnan tekur til skráningar, vinnslu, geymslu og miðlun á persónuupplýsingum. Stefnan er aðgengileg á heimasíðu okkar.

  1. Persónuverndarlöggjöf

Meðferð persónuupplýsinga er háð lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eins og þau eru á hverjum tíma.

  1. Ábyrgð

Ljósmyndavörur ehf. bera ábyrgð á skráningu persónuupplýsinga og meðferð þeirra upplýsinga í starfsemi sinni. Ljósmyndavörur ehf., Skipholti 31, 105 Reykjavík, er löglegur stjórnandi persónuupplýsinganna sem þú veitir félaginu. Hægt er að hafa samband við skrifstofu Ljósmyndavörur ehf. með því að senda skriflega fyrirspurn á bergur@ljosmyndavorur.is.

  1. Söfnun og notkun persónuupplýsinga

Þú getur skoðað og notað vefsvæði Ljósmyndavörur ehf. án þess að gefa upp persónulegar upplýsingar. Ljósmyndavörur ehf. safnar ekki upplýsingum sem vafri þinn sendir frá sér þegar þú nýtir þér þjónustu félagsins, þ.e. gögn sem geta falið í sér upplýsingar eins og IP-tölu þína, tegund vafra, útgáfu vafra, síður þjónustunnar sem þú heimsækir, tíma og dagsetningu heimsóknar þinnar, þann tíma sem þú varðir á þessum síðum og önnur talnagögn.

Ljósmyndavörur ehf. nýtir persónuupplýsingar þínar til að veita og bæta þjónustu sína. Þú samþykkir söfnun og notkun upplýsinga í samræmi við þessa stefnu með því að nota þjónustu Ljósmyndavörur ehf. eða vefsíður félagsins.  Með því að veita Ljósmyndavörur ehf. persónuupplýsingar eftir að hafa kynnt þér persónuverndarstefnu félagsins, samþykkir þú skilmála og skilyrði stefnunnar.

  1. Miðlun

Rík áhersla er lögð á að vernda persónuupplýsingar eins og unnt er. Persónuupplýsingar verða ekki aðgengilegar öðrum aðilum en starfsfólki Ljósmyndavörur ehf.

Við munum hvorki selja, leigja eða deila þínum persónuupplýsingum. Við munum ekki miðla persónuupplýsingum þínum til þriðja aðila án samþykkis þíns fyrir miðluninni.  Þú getur hafna slíkri miðlun nema þegar okkur er það skylt samkvæmt lögum eða þegar það telst nauðsynlegt til að hafa uppi eða verjast réttarkröfu. Vekja skal athygli þín á því að allt efni sem þú birtir eða deilir á samfélagsmiðlasíðum okkar eru opinberar upplýsingar.

  1. Þriðju aðilar

Efni á heimasíðu Ljósmyndavörur ehf. er með tengla á síður sem Ljósmyndavörur ehf. stjórna ekki. Ef þú smellir á tengil frá þriðja aðila, ferð þú af síðum okkar og yfir á vefsvæði þess þriðja aðila.  Við mælum eindregið með því að þú skoðir persónuverndarstefnu á þeim síðum sértaklega.

Persónuverndarstefnan okkar nær ekki til upplýsinga eða vinnslu þriðju aðila, enda höfum við enga stjórn á, né berum neina ábyrgð á notkun, birtingu, miðlun eða vinnslu þeirra á persónuupplýsingum. Við hvetjum þig eindregið til að kynna þér persónuverndarstefnu þeirra aðila sem þú heimsækir, þ.m.t. en ekki eingöngu, fyrirtækja eins Facebook, Apple, Google og Microsoft, Valitor, Borgun og öðrum greiðsluþjónustum sem þú kýst að nota. 

  1. Verndun

Ljósmyndavörur ehf. leggja áherslu á að vernda allar persónuupplýsingar. Ljósmyndavörur ehf. munu tilkynna þér, sem fyrst, ef það kemur upp öryggisbrot er varðar persónuupplýsingarnar þínar. Með öryggisbroti er átt við brot á öryggi sem leiðir til óviljandi eða ólögmætrar eyðingar persónuupplýsinga eða að þær glatist, breytist, verði birtar eða aðgangur veittur að þeim í leyfisleysi

Athygli þín er vakin á því að þú berð ábyrgð á persónuupplýsingum, eins og nafni, kennitölu og mynd, sem þú kýst að deila eða senda á almennum vettvangi eins og t.d. í gegnum Facebook síðu Ljósmyndavörur ehf. Við viljum einnig taka fram að gagnaflutningur á internetinu er aldrei fullkomlega öruggur. Þér er því bent á að láta okkur umsvifalaust vita ef þú telur hættu á að tilteknar upplýsingar sem þú hefur gefið okkur séu í hættu.

  1. Varðveisla

Ljósmyndavörur ehf. reynir eftir fremsta magni að halda persónuupplýsingum um þig nákvæmum og áreiðanlegum og uppfærir þær eftir þörfum. Ef við ákveðum að okkur sé ekki heimilt að varðveita þær áfram, munum við hætta allri vinnslu með persónuupplýsingarnar frá þeim tíma. Ef möguleiki er á að það kunni að vera þörf fyrir persónuupplýsingarnar síðar til að uppfylla lagaskyldur, t.d. gagnvart stjórnvöldum, eða til að höfða eða verjast réttarkröfu, munum við taka afrit af hlutaðeigandi persónuupplýsingum og varðveita þær á öruggu formi eins lengi og nauðsyn ber til.

  1. Réttindi þín

Þú átt rétt á og getur óskað eftir tilteknum upplýsingum með því að senda skriflega fyrirspurn á bergur@ljosmyndavorur.is.

a) að fá að vita hvaða persónuupplýsingar eru skráðar um þig og hvernig þær eru tilkomnar og fá aðgang að persónuupplýsingunum,

b) að fá upplýsingar um hvernig persónuupplýsingar um þig séu unnar,

c) að persónuupplýsingar um þig séu uppfærðar og leiðréttar,

d) að persónuupplýsingum um þig sé eytt, ef ekki er lengur málefnaleg ástæða til að varðveita þær,

e) að andmæla og/eða takmarka hvernig persónuupplýsingar séu unnar,

f) að fá afhendar persónuupplýsingar sem þú hefur látið okkur í té eða að þær séu sendar beint til annars aðila með þeim takmörkunum sem réttindi og frelsi annarra setja,

h) að afturkalla samþykki þitt til vinnslu þegar vinnsla byggist á þeirri heimild með sama hætti og þú gafst það eða með því að senda á okkur skriflega fyrirspurn,

I) að fá upplýsingar um hvort fram fari sjálfvirk ákvarðanataka, þ.m.t. gerð persónusniðs og um þau rök sem þar liggja að baki og einnig þýðingu og fyrirhugaðar afleiðingar slíkrar vinnslu.

Beiðni þín verður tekin til greina og þér afhentar upplýsingarnar, þegar það á við, innan hæfilegs tíma, þó með þeim takmörkunum sem réttindi og frelsi annarra gera, þ.m.t. vegna viðskiptaleyndarmála og hugverkaréttinda. Athygli er vakin á að innheimt er sérstakt ljósritunargjald ef farið er fram á fleiri en eitt afrit. Þér verður tilkynnt og gefin skýring á ef töf verður á afgreiðslu eða ef ekki er unnt að verða við beiðninni að fullu eigi síðar en mánuði frá móttöku hennar. Þú getur kvartað til Persónuverndar ef við neitum að afhenda þér ákveðnar upplýsingar.

  1. Persónuvernd barna

Persónuupplýsingar um börn yngri en 13 ára er ekki safnað.

  1. Breytingar á persónuverndarstefnu Ljósmyndavörur ehf.

Persónuverndarstefnan er endurskoðuð reglulega og kann því að taka breytingum. Ljósmyndavörur ehf. munu tilkynna um allar breytingar með því að birta nýja persónuverndarstefnu á heimasíðu félagsins. Þér er því ráðlagt að kynna þér persónuverndarstefnuna reglulega en breytingar á stefnunni öðlast gildi við birtingu á heimasíðu félagsins. Þegar efnislegar breytingar eru gerðar sem kunna að hafa þó nokkur áhrif á réttindi þín munum við tilkynna sérstaklega um þær. Við tökum öllum athugasemdum um persónuverndarstefnuna fagnandi og hvetjum þig til að senda okkur fyrirspurn.